Þú hefur alltaf val

Í öllum aðstæðum, í hverju sem þú lendir eða lendir ekki í – ÞITT VAL – Þú hefur val um það hvernig þú bregst við þeim aðstæðum hverju sinni. Þó valið sé ekki alltaf auðvelt og margt geti spilað inn í hefur þú val um hvernig þú tæklar aðstæður, hvernig skapi þú ert í hverju sinni, hvað þú segir, hvernig líkamstjáningin þín er, hvaða strauma þú gefur frá þér til annarra. 

Þú getur valið þér nám, starf, maka, vini, hverjum þú vilt eiga í samskiptum við í lífinu. Þú hefur val um að setja mörk í lífi og starfi. Sjálfum þér og öðrum. Þú hefur val um að lifa heilbrigðu lífi, hefur val um að hreyfa þig, borða og drekka það sem er gott fyrir líkamann þinn og andlegu heilsuna þína.

Þú hefur val um að fara snemma í háttinn og hvenær þú vaknar. Þú hefur val um að fara út fyrir þægindarammann þinn og prófa eitthvað nýtt í dag. Þú hefur val um hvernig þú verð deginum þínum.

Valið er þitt

„Everything can be taken from a man but one thing: the last of the human freedoms—to choose one's attitude in any given set of circumstances, to choose one's own way…“

Viktor E. Frankl

„Between stimulus and response there is a space. In that space is our power to choose our response. In our response lies our growth and our freedom“

Viktor E. Frankl